Vörur sem efla heilsu, auka lífsgæði, auðvelda störf og daglegt líf.
Verið velkomin í verslanir okkar að Stórhöfða 25 og í Kringlunni, 1. hæð. Vefverslunin býður fría heimsendingu þegar verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira.
Fréttir
Bjóðum úrval af rafskutlum á 20-30% afslætti í nokkra daga. - GoGo rafskutla - Lipur og nett jafnt innan dyra sem utan. - Victory 10 - Góð fjöðrun. Lengri drægni. Ein sú vinsælasta. - Victory 140 - Öflug fjöðrun fyrir flestar aðstæður utandyra.
Október hefur lengi haft tilfinningalegt gildi fyrir starfsmenn Eirbergs enda snertir krabbamein og þá sérstaklega brjóstakrabbamein okkar daglega starf. Stór hluti þeirra kvenna sem misst hafa brjóst í krabbameinsmeðferð á Íslandi eru skjólstæðingar hjúkrunarfræðings Eirbergs. Við sýnum lit, erum stuðningsaðili krabbameinsfélagsins og seljum slaufuna í verslunum okkar með stolti. Verið velkomin í verslanir okkar að Stórhöfða 25 og í Kringlunni.
Boneco Air Shower vifturnar eru stílhreinar og hljóðlátar sem draga mikið loft, bæta loftgæði og loftskipti. Einstök hönnun á ytra byrði,spöðum og mótor hjálpa Boneco viftum að afkasta miklu með lágmarks hljóðtruflun. Bjóðum gott úrval, allt frá litlum borðviftum fyrir skrifborðið sem þú stingur í samband með usb snúru yfir stórar viftur á stöndum fyrir opin rými, skrifstofur og svefnherbergi.